Terms of service
Skilmálar um kaup á vöru og þjónustu Lauf Cycles hf.
Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru og þjónustu til viðskiptavinar í verslun og/eða í gegnum vefverslun Lauf Cycles hf., kt. 500811-0210, Grandagarði 1b, 101 Reykjavík (hér eftir „félagið“ eða „Lauf“), eftir því sem við á hverju sinni.
Viðskiptavinur er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikningi. Kaupandi verður að vera orðinn fjárráða til þess að eiga viðskipti í vefverslun.
Með því að kaupa vöru eða þjónustu frá Lauf, hvort sem er í verslun og/eða í gegnum vefverslun félagsins samþykkir þú skilmála þessa og staðfestir að þú sért upplýstur um rétt þinn við kaup á vöru eða þjónustu hjá Lauf.
Um viðskipti og réttarstöðu viðskiptavinar og Lauf gilda, nema annað sé sérstaklega ákveðið í þessum skilmálum, lög um neytendakaup nr. 48/2003 ef viðskiptavinur er einstaklingur, og lög um lausafjárkaup nr. 50/2000 ef viðskiptavinur er fyrirtæki. Um viðskiptin gilda jafnframt lög um neytendasamninga nr. 16/2016 og, eftir atvikum, lög um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu nr. 30/2002.
Samningssamband
Með því að leggja inn pöntun, hvort sem er í gegnum vefverslun Lauf eða í verslun félagsins, ert þú að mynda bindandi kaupsamning við:
Lauf Cycles hf.
Kennitala: 500811-0210
verzlun@laufcycles.com
Grandagarður 1b
101 Reykjavík, Ísland
Með því að leggja inn pöntun staðfestir þú að allar upplýsingar sem þú gefur séu réttar.
Hvorki það að leggja inn pöntun né að ljúka greiðsluferli telst vera samþykki Lauf.
Lauf áskilur sér rétt til að hafna pöntun og endurgreiða greiðslu að fullu.
Ef pöntun þinni er hafnað, verður þér tilkynnt um það eins fljótt og auðið er.
Verð
Öll verð í vefversluninni eru tilgreind í íslenskum krónum (ISK).
Verð geta tekið breytingum. Verðhækkanir sem eiga sér stað eftir að pöntun hefur verið gerð hafa ekki áhrif á viðkomandi pöntun. Það verð sem gilti við pöntun gildir og kemur fram á staðfestingu pöntunar.
Tollar, skattar og sendingarkostnaður
Verðin sem birt eru í verslun og vefverslun Lauf á Íslandi taka tillit til tolla, skatta og sendingarkostnaðar. Engin gjöld leggjast á pöntun eftir að viðskiptavinur lýkur við pöntunaferlið. Ef um er að ræða frávik eða villur í verði er vísað í undirkaflann „Verðvillur og fyrirvari um upplýsingar“
Verðvillur og fyrirvari um upplýsingar
Komist upp um verðvillu á keyptri vöru verður viðskiptavini tilkynnt um það eins fljótt og unnt er. Lauf ber enga skyldu til að afgreiða pöntun ef verðvilla er í verðskrá eða í kerfum félagsins, óháð því hvort pöntunin hafi verið staðfest.
Upplýsingar sem birtast á vefsíðu Lauf geta innihaldið ónákvæmni, villur eða úreltar upplýsingar. Við ábyrgjumst ekki að allar upplýsingar eigi við þig. Upplýsingarnar birtast eins og þær eru, án ábyrgðar.
Afhendingarstaður
Allar afhendingar á keyptum vörum fara fram á Grandagarði 1b, nema um annað sé samið við kaup.
Afgreiðsla pöntunar
Lauf mun afgreiða pöntun á þeim afhendingardegi sem gefinn var upp við pöntun, en gerir jafnframt heiðarlega tilraun til að ljúka afgreiðslu fyrr ef unnt er.
Alla jafnan er afhending hjóla innan 18 viðskiptadaga.
Samsetning hjóla tekur almennt 5-9 viðskiptadaga, en fer þó eftir lagerstöðu, og sending frá vöruhúsi félagsins tekur 5-9 viðskiptadaga með flutningsaðila.
Ófyrirséð atvik geta þó komið upp sem geta tafið afgreiðslu og afhendingu vöru, svo sem seinkanir hjá flutningsaðila, tollafgreiðsla, skemmdir í flutningi, náttúruhamfarir, verkföll eða önnur óviðráðanleg atvik. Lauf ber enga ábyrgð á slíkum drætti en mun þó leitast við að finna lausn sem hentar báðum aðilum. Sé viðskiptavinur ekki sáttur við lausnina er honum frjálst að hætta við pöntun og fá fulla endurgreiðslu sé varan ekki komin til flutningsaðila.
Skil á vöru
Vörunni fæst hvorki skipt né skilað eftir afhendingu.
Eiginleikar vöru
Lauf ábyrgist að vörur sem seldar eru af fyrirtækinu séu framleiddar í samræmi við viðeigandi gæðastaðla og henti í þeim tilgangi sem sambærilegir hlutir eru venjulega notaðir til.
Þessi ábyrgðaryfirlýsing nær ekki til tjóns eða bilana sem rekja má til notkunar sem er utan þess eðlilega og fyrirhugaða notkunarsviðs sem varan er hönnuð og seld fyrir. Slík afmörkun ábyrgðar byggir á hlutlægum forsendum og er nauðsynleg til að tryggja öryggi og endingu vörunnar. Sem dæmi um notkun sem fellur utan skilgreinds notkunarsviðs og þar með utan þessarar ábyrgðar má nefna, en er þó ekki takmarkað við:
- Notkun „Úthald“ götuhjóls á fjallahjólaslóðum.
- Notkun „Seigla“ malarhjóls á tæknilega erfiðum fjallahjólaleiðum með stórum stökkpöllum og/eða grjótgörðum.
- Að fara yfir uppgefin þyngdartakmörk viðkomandi vöru eða íhluta hennar
Rétt er að árétta að framangreind ábyrgðaryfirlýsing er veitt til viðbótar við og takmarkar á engan hátt þau ófrávíkjanlegu réttindi sem viðskiptavinur nýtur samkvæmt íslenskum lögum.
Ábyrgð á vörum Lauf
Vörur framleiddar af Lauf hafa 7 ára ábyrgð frá söludegi fyrir upprunalegan eiganda vegna efnis- og/eða framleiðslugalla.
Fyrir aðra eigendur en upprunalegan kaupanda er ábyrgðartími 2 ár frá afhendingu frá Lauf.
Ef þú telur að varan sé gölluð eða hefur áhyggjur af ástandi hennar, vinsamlegast fylltu út eftirfarandi eyðublað https://www.laufcycles.com/warranty.
Ábyrgðin nær ekki til:
- Skemmda á málningu eftir afhendingu.
- Eðlilegs slits.
- Skemmda vegna rangrar notkunar, breytinga á vörunni, hirðuleysis, slysa eða árekstra (sjá hluta um „crash replacement“).
- Notkun hjólavagna eða hjólasætis (fellir ábyrgð úr gildi).
- Vandamála sem stafa af breytingum á stelli, gaffli eða stýri.
Lauf áskilur sér rétt til að:
- Krefjast staðfestingar á kaupum (kvittun eða pöntunarstaðfesting).
- Krefjast þess að varan sé send til skoðunar (sendingarkostnaður greiddur af Lauf).
- Bjóða staðgönguvöru í sambærilegri gerð eða lit, eða endurgreiðslu ef vara er ekki lengur framleidd
Ef galli er í íhlut frá öðrum framleiðanda (t.d. SRAM, e*thirteen, Zipp) skal hafa beint samband við þann framleiðanda. Ef það tekst ekki, láttu Lauf vita – við viljum aðstoða eftir bestu getu.
Ef ábyrgðartími er liðinn hvetjum við þig til að hafa samband – Lauf vill aðstoða ef mögulegt er.
Allir íhlutir frá öðrum framleiðendum (t.d. drifbúnaður eða gjarðir) fylgja ábyrgð viðkomandi framleiðanda.
Ef galli er í íhlut frá öðrum framleiðanda ber sá þriðji aðili ábyrgð á gallanum og skal hafa beint samband við hann. Ef það tekst ekki, láttu Lauf vita – við munum aðstoða eftir bestu getu.
Galli á vörum (lögbundin ábyrgð)
Ef galli kemur í ljós skal tilkynna það til Lauf innan tveggja mánaða frá því að hann kom í ljós.
Sé galli staðfestur innan ábyrgðartíma mun Lauf annað hvort skipta út vörunni eða greiða fyrir nauðsynlegar viðgerðir til að koma vörunni í ásættanlegt ástand.
Kvartanir og ábyrgðarkröfur
Kvartanir og/eða ábyrgðarkröfur skulu sendar til Lauf með viðeigandi ábyrgðareyðublaði á vefsíðu okkar: https://www.laufcycles.com/warranty
Þjónustufulltrúar á LiveChat geta einnig aðstoðað á hefðbundnum skrifstofutíma.
Greiðslumáti
Hægt er að greiða fyrir vöruna í vefversluninni með kortagreiðslu í gegnum örugga greiðslugátt Straums.
Persónuvernd
Farið er með allar persónuupplýsingar sem seljandi mótttekur í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga („persónuverndarlög“). Öll vinnsla persónuupplýsinga á grundvelli skilmála þessara, þar með talin söfnun, skráning, notkun og miðlun, fer fram í samræmi við ákvæði laganna.
Lauf er nauðsynlegt að vinna með upplýsingar sem teljast til persónuupplýsinga í skilningi persónuverndarlaga, s.s. upplýsingar um nafn, kennitölu, heimilisfang, samskiptaupplýsingar og reikningsupplýsingar. Kemur Lauf fram sem ábyrgðaraðili í skilningi persónuverndarlaga í tengslum við framangreinda vinnslu.
Breytingar á skilmálum
Lauf áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum hvenær sem er. Slíkar breytingar taka gildi um leið og þær eru birtar. Nýjustu skilmálar eru ávallt aðgengilegir á laufcycles.com og gilda þeir um öll viðskipti frá birtingu þeirra.
Ýmislegt
Verði einhver ákvæði þessara skilmála talin ólögleg, ógild eða óframkvæmanleg samkvæmt gildandi lögum, skal það ekki hafa áhrif á gildi og framkvæmd annarra ákvæða.
Ef einhver ákvæði eða réttindi sem Lauf nýtur samkvæmt íslenskum lögum eða reglum hafa ekki verið sérstaklega tilgreind í þessum skilmálum, telst það hvorki afsal þeirra réttinda né takmörkun á réttarstöðu þeirra. Öll slík réttindi og vernd gilda áfram óskert.
Gildandi lög og lögsaga
Ávallt skal leitast við að leysa ágreining með sátt. Náist ekki sátt er heimilt að bera málið undir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa, sem starfar á vegum Neytendastofu. Sem síðasta úrræði má vísa málinu til dómstóla. Slíkt skal gert fyrir íslenska dómstóla í lögsagnarumdæmi Lauf.
Um þessa skilmála gilda íslensk lög.